Í Byggðasafni Skagfirðinga er varðveittur spónn úr lambhrútshorni, smíðaður af Páli Þórðarsyni og fyrir Guðrúnu Sveinsdóttur með ártalinu 1911. Þessi hlutur ber með sér sögu bæði handverksmanns og eiganda og veitir okkur innsýn í fyrrum lífshætti fólks. Þessi spónn eða skeið hefur verið skreyttur fallega og líklegast verðmætur persónulegur munur. Ef maður horfir framhjá sliti tímans þá er hægt að sjá að þessi skeið var mikið notuð. Út frá þessum spón er hægt að rannsaka tengingu milli efnis, líkama, matarvenja og trúar í samhengi skeiðarinnar. Í verkefninu Daily Spoon (2014-2015) sker Stian Korntved Ruud út 365 skeiðar, eina skeið á dag í heilt ár. Í ferlinu kannar hann möguleika mismunandi viðartegunda, forms og notagildis. Endurtekning verður að rannsóknaraðferðinni og þeirri nálgun mætti beita á ýmiss önnur efni. Það væri áhugavert að kanna skeiðar í staðbundnu umhverfi og efnivið og gera tilraunir á formi og sjá hvað hægt er að breyta miklu áður en skeiðin missir einkenni sín. Í Designs for an Overpopulated Planet: Foragers (2009) ímynda Anthony Dunne og Fiona Raby sér búnað sem að gerir manneskjunni kleift að nýta óhefðbundna fæðugjafa. Búnaðurinn er eins og framlenging á okkar innri kerfi og, líkt og skeiðin, okkar líkama. Sem framlenging á líkama okkar missir skeiðin hlutverk sitt sem verkfæri og verður partur af einhverri heild. Hlutverkið sem að skeiðin gegnir er líka vert að rannsaka. Í Sharing Dinner (2005), sem Marije Vogelzang vann fyrir Droog í Amsterdam, voru gestir tengdir saman með upphengdum borðdúk og maturinn settur fram þannig að hann hvatti til samveru. Maturinn sjálfur var hannaður með það í huga að efla samskipti. Skeiðin gegnir ýmiss hlutverki þar sem við borðum sjálf, deilum mat eða mötum aðra með henni við matarborðið. Í Volumes, sem Vogelzang vann fyrir sýninguna Food Revolution 5.0 í Museum für Kunst und Gewerbe í Hamborg í samstarfi við sýningarstjórann Claudia Banz, eru hlutir settir meðal matar á disk. Verkefnið kannar hvernig framsetning getur mótað upplifun máltíðar og notar hönnun til að brjóta upp hefðbundna snið matarborðsins. Hönnunin er gerð til að minnka ofát. Það má tengja þetta verkefni inn á form skeiðarinnar og kanna hvernig stærð og lögun hefur áhrif á notkun. Verkefnin fjögur sem nefnd hafa verið opna fyrir rannsókn á skeið í formi, framlengingu á líkama og sem þátttakanda í daglegu lífi.
Heimildir
- Byggðasafn Skagfirðinga. (án árs). Spónn, safnnúmer BSk-2957/1997-940. Sarpur.
- Dunne, A. og Raby, F. (2009). Designs for an Over-populated Planet, No.1: Foragers. Royal College of Art.
- Norske Kunsthåndverkere. (2015, 12. október). Årets Kunsthåndverksprisvinner viser stor innlevelse til håndverket.
- Vogelzang, M. (án árs). Sharing Dinner. Verkefni frá 2005.
- Vogelzang, M. (án árs). Volumes.